Flutt af Kristjáni Baldurssyni á aðventunni 2024
– Megi eilífðar sól á þig skína og kærleikur umlykja.
Og þitt innra ljós þér lísa áfram þinn veg, áfram þinn veg.
Ég vil byrja á að segja stuttlega frá Meistara Pharamahansa Yogananda. Hans fræði og boðskapur hafa heillað mig og mótað mínar skoðanir meira en nokkur annar. Hann sameinaði trúarbrögð og var líka mikill krists-yogi. En ýmislegt annað hefur haft áhrif viðhorf mín. Ekki minnst svokölluð guðspeki theo sofi sem Rússneska konan Blavatsky er höfundar að ásamt Anny Besant og Leadbeater. Og svo auðvitað Khrisnamurti sem alin var upp af Anny Besant og Leadbeater til þess að verða alheimsfræðari.
Einkunnar orð Guðspekinnar eru „Engin trúarbrögð eru sannleikanum æðri“
Nýlega kynntist ég Meistara Tich Nhat Hanh, Zen Buddha meistara sem skrifað hefur fjölda bóka um Buddhiskan lífsstíl og lífsspeki.
Þetta spjall mitt eru skoðanir mínar og vangaveltur. Skoðanir sem hafa myndast við lestur og fræðslu. Maður tileinkar sér það sem höfðar til manns og manni finnst trúverðugt.
Ein af mínum uppáhaldsbókum er Ævisaga Yogananda og hans kenningar og fræðsla hafa höfðað sérstaklega til mín Þessi bók fjallar um þroskasögu Yoga sem náði miklum og farsælum árangri og varð raunar heimsfsrægur fyrir þessa bók og ævistarf sitt á vestsurlöndum. Hann fæddist 5. janúar 1893 og dó 7. mars 1953, aðeins 59 ára gamall. Mér hefur alltaf fundist svolítið gaman að eiga sama afmælisdag og hann.
Til er samsafn a fyrirlestrum sem hann hélt og varðveittust sérstaklega áhugaverðir og fallegir; Manns Ethernal Quest.
Þessi merkilega ævisaga hans inniheldur alveg ótrúlegar sögur sem hann upplifði sjálfur á sinni ævi sumar raunverulegar kraftaverkasögur. Á einum stað segir hann frá því að Mahasi yogi læknaði blindan mann sem verið hafði blindur frá fæðingu. Á öðrum stað segir hann frá því að systir hans hafi beðið hann að hafa áhrif á eiginmann sinn ,,sem gerði grín og lítilsvirti hennar helgustu andlegu viðleitni og hluti” Það er frábær lýsing á því hvernig honum tókst það með sínu hugarafli og einbeitingu.
Hann færði sönnur á vald yogans yfir dauðanum Því líkami hans rotnaði ekki að honum látnum í margar vikur. Í bókinni eru margar alveg ótrúlegar sögur af hans meisturum sem lýsa hversu gríðarlegu valdi hægt er að ná yfir lífi sínu og líkama með yoga þjálfun og yoga iðkun.
Yogananda fór ungur frá Indlandi og flutti til Bandaríkjanna og hóf að kenna andleg fræði og sérstaka Yoga aðferð sem hann hafði lært af sínum lærimeisturum, Kryja Yoga. En meistarar Yogananda voru hver fram af öðrum Sri Yuketsvar Giri, Mahasi Yogi og Babaji yogi.
Yogananda segir: Mennirnir eru skamma stund gestir á þessari jörð og vita ekki hversvegna þeim er kastað inn í ákveðið hluskifti. Svo allir verða að læra að skilja hvers almættið ætlast til af þeim.
Hann segir áfram Þetta er það sem ég geri. ,,Á hverjum morgni spyr ég guð minn hvers hann ætlist til af mér í dag. Eftir það sé ég hann vinna gegnum hendur mínar og heila og allt verður samkvæmt hans ákvörðum.” Og þetta er krafturinn sem allir geta treyst.
Hann lagði líka mikla áherslu á bænalífið sagði ekki biðja eins og þið séuð að betla, heldur af öryggi þess að vera barn guðs sem biður föður sinn.
Maður skal ekki varpa öllum bænum sínum á ytri guðdóm og vænta þess að árangur komi í ljós einhverntíman seinna. Því guð er innra i manni sjálfum og enginn aðskilnaður til, aðskilnaðinn búum við til sjálf.
Maður á biðja þess sem maður vill með sannri bæn af sannri auðmýkt og muna að ekkert er fengið nema maður taki við því og þiggi það með þakklæti og auðmýkt það sem maður fær og öðlast.
Ekki láta gjafirnar liggja heldur taka við og þiggja með þakklæti það sem maður fær og öðlast, taka þær þær til sín og nýta sér þær. Því svo oft hefur bænin ræst og fullkomnast þegar maður efast ekki um árangurinn. Ekki minnst er mikilvægt að vera skýr í bæninni móta skýra hugsun um bænarefnið sjá það fyrir sér rætast þá er maður að stuðla að því að bænin verði að veruleika. Þá er maður sjálfur að skapa með guði að bænin rætist og verði raunveruleg.
Það er óbilandi trúin, æðra sjálfið og hugsunin sem skapar og lætur óskirnar rætast. Venjulegast er maður alltof þokukenndur í bænum sínum venjulega er maður með ruglingslegar almennar bænir og óskir sem ná ekki langt vegna þess að hvorki trúin er nógu sterk eða hugurinn nógu skýr til að árangurinn verði fullkomin bænheyrsla.
Þá sný ég mér að öðru sem ég hef verið upptekinnn af Það er hið merkilega hugtak Ég er
Ég er í Biblíunni oft táknið fyrir Guð. í 2. Mósebók Köllun Móse . stendur: “Ég er sá sem ég er” Ég er sendi mig til yðar”
í 46. Davíðssálmi stendur ,,Viðurkennið að ég er guð” (Be still and Know I am god.)
Og Jesús hann segir í sínum beinu ræðum “Ég er. Ég er vegurinn sannleikurinn og lífið, Ég er ljós heimsins, ég er hinn sanni vínviður. Ég er upprisan og lífið ég er í föðurnum og faðirinn í mér. Verið í mér þá verð ég líka í yður. Ég er sá sem ég er. Sá sem er í mér og ég í honum hann ber mikin ávöxt.
Ef við dveljum við þetta hugtak ég er. Þá er það líka táknið fyrir okkar æðra sjálf og verund.
Og líklega einnig það sem Tich Nhat Hanh kallar Interbeing. En hann talar svo mikið um að vera í staðinn fyrir að gera. Og vill meina að við gleymum að vera af því að við erum alltaf að gera eitthvað. Þetta er kallað núvitund eða mindfulness. Og meistari Tich Nhat Hanh kennir öfluga aðferð til þess að æfa núvitundina. Einfaldlega vera meðvitaður um öndun sína. Ég anda að mér og ég anda frá mér. Í Buddha fræðum er líka talað um Diamond Sutra. Þar sem áherslan er að átta sig á á að vera hluti af heildinni.
En mannskepnan lítur oftast á sig sem eitthvað einangrað fyrirbæri sem er æðra öllu öðru lífi og æðra öllum öðrum lífverum. Þetta hefur haft í för með sér óhemju eyðileggingu fyrir náttúruna. Mennirnir vilja hafa allt fyrir sig en átta sig ekki á maðurinn er órjúfanlegur hluti náttúrunnar.
Khrisnamurti tekur undir og segir „You are the world“
Að finna sinn guð í sjálfum sér hlýtur alltaf að verða mikilvægasta verkefni hvers og eins og mikilvægasta takmarkið í lífinu. Að skilja á milli dagvitundar og bjástursins sem maður daglega stríðir með persónulega sjálfsins og ópersónulega sjálfsins, æðra sjálfsins. Heilastarfsemin og hugurinn er ekki maður sjálfur heldur innsæið sálin.
Þetta er það sem maður þarf að reyna að gera að helsta markmiði sínu í lífinu. Helsta verkefni sínu sem maður alltaf stöðugt þarf að vinna að þar til árangur næst. Þegar menn ná þessu markmiði, þessum mikilvæga aðskilnaði milli Persónulega egósins og ópersónulega Ég er, Þá komumst við í samband við alheimsvitundina alheims consciousness cosmisc consciousness.
Páll postuli segir í 1. kor 3,16 Vitið þér ekki að þér eruð musteri guðs og andi guðs býr í yður, og Kor 1. 6,19 Líkami yðar er musteri heilags anda.
Guð er í öllu lífi og líka í lífi mannsins.
Takmarkið er að finna guð í sjálfum sér, en ekki langt í burtu, ekki utan við sjálfan sig heldur innst inni í sálinni. Kenningar trúarbragðanna hafa beinst of mikið að leitinni að guði fyrir utan sjálfan sig. Fræðin leggja sérstaklega áherslu á þetta atriði að leitin verður að vera inná við ekki utan við sjálfan þig. Það er helgur staður innst inni í sálinni þar sem allt er fullkomið heilbrigt og takamarkalaust. Þar sem maður finnur æðra sjálfið þar sem maður finnur allt hið æðsta allt hið fullkomna allt hið heilbrigða allt hið endalausa góða og miskunnsama. Þar sem hið skærasta sannleikans ljós leiðir mann í allan sannleika og leiðbeinir í einu og öllu. Þar er ég er.
Það er hið eftirsóknarverða samband það er að fullkomna líf sitt. Það er mín sannfæring að þessi staður sé til innst í vitund allra manna. Margir hafa fundið hann og lifa eftir það í samræmi við hann láta æðra sjálfið leiða sig í einu og öllu. Kvíðin og sálarangistin kemur af því að okkur finnst við vera ein. Hann kemur vegna vantrausts á vernd guðs, vantrausti og trúleysi að maður sé einn á báti að glíma við alla hluti. Við þurfum að einbeita okkur og trúa á okkar innri rödd okkar innri sannleika trúa á að það sé okkar innri ástvinur sem leiðir okkur daglega í einu og öllu. Vera Vera í honum.
En við erum vel flest svo upptekin af okkar takmarkaða sjálfi, takmarkaða egoi líkamsvitund, lífsnautn og takmörkuðum hugsunum að æðra sjálfið kemst ekki að, en það er á sínum stað þrátt fyrir það en við verðum að vekja það til að láta það komast upp á yfirborðið og gagntaka okkur kenna okkur leiðbeina okkur í einu og öllu.
En það þýðir ekki meinlæta líf, það þýðir ekki að loka sig frá lífinu og ganga í klaustur eða neita sér um allt. Þvert á móti þýðir það ríkara líf hamingjusamara líf, betra líf fyrir mann sjálfan og alla í kringum mann. Það er vitundarvíkkun, það er gleggri skilningur á öllu lífi og umhverfi. Það verður til þess að allar ákvarðanir verða réttar og í samræmi við það sem best er. Þá hættir maður að láta lægri vitundina fara með mann í vitlausa átt og gerir allt í samræmi við hið æðsta og besta. En maður verður að snúa sér af öllum sínum krafti, allri sinni auðmýkt, öllum sínum vilja öllu sínu lífi, öllum sínum hugsunum öllum sínum áhyggjum öllu lífi sínu til síns æðra sjálfs til síns ástvinar í sálinni sem tekur þá við manni og opnar allar gáttir. Þetta er takmarkið í lífinu þetta er hið sanna verkefni sem allir þurfa að keppa að og allir ná fyrr eða síðar. Opnað allra orkustöðvar líkamans og hjálpað okkur að tengjast Andlegu alhemsvitundinni.
Cosmisc consciousness.
En þetta er meira en segja það, þetta er ekkert auðvelt að vakna til meira andlegs lífs og margar leiðir eru til. Frá örófi alda hefur mannskepnan leitað og upphugsað aðferðir treyst á spámenn og meistara, gruflað og naflaskoðað sjálfan sig, en því miður oft með misgóðum árangri.
Til þess að ná þessu marki að vakna til andlegs lífs er þjálfun nauðsynleg Eitt mikilvægt atriði er er yoga iðkun. Hugleiðslu iðkun og bæna iðkun.
Takk fyrir

Leave a comment