Græni sófinn
Umræðuvettvangur um umhverfismál
8. Október – Fimmtudagskvöld milli 20:15 og 21:15 sest Rán Flygenring, skáld og listakona, í sófann ásamt Þórhildi Fjólu Kristjánsdóttur og fjallar um allskonar verkefni sem Rán hefur verið að fást við.

5. Nóvember – Fimmtudagskvöld milli 20:15 og 21:15 sest Silja Elvarsdóttir, stjórnarformaður Miðstöðvar velsældarhagkerfis, í sófann ásamt Þórhildi Fjólu Kristjánsdóttur og þær ræða um velsældarhagkerfið.
4. Desember – Fimmtudagskvöld milli 20:15 og 21:15 sest Skúli Skúlason líffræðingur í sófann ásamt Þórhildi Fjólu Kristjánsdóttur og þau ræða um frumbyggjavisku og náttúrutengingu.
Leshringur

Fyrsta miðvikudag hvers mánaðar er leshringur í Plómunni. Bókin sem er til umfjöllunar þessar vikurnar er Living Buddha Living Christ eftir Thich Nath Hanh. Áhugasamir geta skráð sig með því að senda tölvupóst á plomanhagamel @ gmail . com
Opnir tímar
Mánudagar: Pilates með Margréti milli 17:00 og 17:50 – skráning á thematclass.is
Þriðjudagar: Yoga nidra djúpslökun með Söru milli 17:00 og 18:00 – skráning hér.
Hugleiðslustund milli 20:00 – 21:00, leidd hugleiðsla, te og spjall – öll velkomin og skráning óþörf – Sólveig Hlín leiðir.
Miðvikudagar: Pilates með Margréti milli 17:00 og 17:50 – skráning á thematclass.is
Fimmtudagar: Hugleiðsla milli 12:10 og 12:40 – öll velkomin – leidd á ensku af Vanitha
Chill-out holistic yoga milli 17:30 og 18:30 – leiðbeinandi er Vanitha. Ath. að á fimmtudaginn 24. september verður jóga tíminn kl 16-17:00.
Föstudagar: Opið hús milli 14:00 og 16:00 fyrir te og kaffispjall, frjáls iðkun í sal
Viðburðir á vegum Climate Café
Climate Café er samfélagsverkefni sem styður við persónulega seiglu og vellíðan, hvetur til umhverfisvitundar og eflir samkennd í samfélaginu. Markmiðið er að skapa rými þar sem fólk á öllum aldri og með ólíkan bakgrunn getur komið saman, miðlað reynslu sinni og velt fyrir sér tilfinningum og viðhorfum tengdum umhverfisáskorunum.
Fylgstu með: facebook.com/ClimateCafeIceland
