Plum Village er Búddískt klaustursamfélag í þremur þorpum í suðvestur Frakklandi ekki langt frá borginni Bordaux. Það skiptist í Lover Hamlet, Upper Hamlet og New Hamlet. Lower Hamlet og New Hamlet eru nunnuklaustur en Upper Hamlet er munkaklaustur. Þarna er samankomið eitt stærsta klaustur samfélag í Evrópu.
Í Plum Village er boðið upp á endurhæfingarnámskeið fyrir almenning um lengri eða skemmri tíma. Þarna er áhersla er öll lögð á kærleika, samkennd og núvitund, sem er grundvöllur Búddismans. Stofnandi þessa samfélags er Thich Nhat Hanh vietnamskur Zen Búdda meistari, friðarsinni og frumkvöðull. Hann gerðist Buddha munkur aðeins 16 ára gamall. Þegar hið hryllilega stríð geysaði í Vietnam á sjöunda áratugnum skynjaði hann að illt verður ekki sigrað með illu heldur með með umhyggju, samkennd, kærleika og skilningi. Hann helgaði allt líf sitt kærleiksríkri fræðslu með áherslu á samkend, kærleika og núvitund. Hann lét líka mikið til sín taka í friðarhreyfingum og Martin Luther King tilnefndi hann til friðarverðalauna Nobels 1967. Í dag eru samfélög byggð á hans kenningum víða um heim. Hann ritaði líka mikinn fjölda fræðslurita og bóka auk þess sem hann þýddi Buddhisk fræði frá kínversku og vietnamisku yfir á ensku.
Það sem einkennir bækur hans og fræðslu er hvað allt er skýrt og einfalt í framsetningu, allt svo auðskilið og fallegt. Rauði þráðurinn er alltaf núvitundin og mikilvægi þess að vera til staðar hér og nú, vera meðvitaður um andardráttinn, meðvitaður um líkama sinn og umhverfi sitt. Ekki minnst meðvitaður um náttúruna, móður jörð. Sýna móður jörð kærleika, sýna öllu lífi kærleika og virðingu. Við þurfum að gera okkur grein fyrir að við mannfólkið þiggjum allt frá móður jörð allt okkar líf og að við erum hluti af náttúrunni. Við verðum að skynja fegurðina og sýna þakklæti.
Það var gott að láta minna sig á þessi sannindi.
Það var yndislegt að upplifa heila viku í Plum Village New Hamlet i oktober síðast liðnum (2025). Endurhæfingarvika með blöndu af fræðslu, hvíld og hugleiðsluæfingum bæði sitjandi hugleiðslu og gönguhugleiðslu. Alltaf með áherslu á núvitund (mindfulness). Auk andlegra íhugana var vinna við garðyrkju, uppskera tómata, blómkál, brokkoli, grasker, chilipipar og fleira. Klippa auka greinar af ávaxtatrjánum og byrgja beðin með heyi fyrir veturinn.
Meðfram öllum stígum eru yndislegir rósarunnar og lavendelrunnar. Ekki má gleyma tjörnum með dásamlegum lótusblómum. Fagra lótusblómið er tákn fyrir Budhisma, það vex upp úr leðju. Í fræðunum segir, að ef engin leðja ekkert lótusblóm og er þannig táknrænt fyrir andstæðurnar í náttúrunni og í lífinu. Þarna er líka mikill skógur af plómutrjám sem þorpið dregur nafn sitt af. Auk þess alls konar tré hasselhnetu tré bambus tré og fl.
Tvisvar á dag var gönguhugleiðsla fyrir hádegi svo líka á kvöldin þá var gönguhugleiðsla upp á hæð ofan við þorpið meðan rökkrið seig á og tunglskinið tók við þá var sest í grasið og hugleitt. Það var mikil upplifun og stemmning þegar um 100 manna hópur, nunnurnar tóku líka þátt í að hugleiða undir fullu tungli 8. október, og ekki spillti veðrið logn og þægilegt hitastig.
Einn er sá siður í Plum Village að klingja bjöllu og alltaf þegar bjalla hljómar hætta allir í því sem þeir eru að gera og minna sig á núvitundina og beina athyglinni að andardrættinum og vera hér og nú í fullri meðvitund.
Fæðið er vegan og að miklu leiti sjálfbært. Grænmeti og ávextir eru ræktaðir af íbúum samfélagsins.
Það er líka mikið sungið fallegir og uppörvandi söngvar fyrir viðburði. Þetta er einstaklega viðkunnanlegt samfélag, það lögðu sig allir fram um að vera glaðlegir og brosa til hvers annars. Á námskeiðinu voru um 50 manns um helmingur Frakkar en hinn helmingurinn fólk allsstaðar úr heiminum. Meiri hlutinn var konur líklega um 70 % meirihlutinn var líka ungt fólk en þó fólk á öllum aldri í bland. Ég fann ekki mikið fyrir því að vera elstur eða 80 ára gamall og reyndi eftir bestu getu að taka þátt í flestum viðburðum. Vikan var fljót að líða en skildi mikið eftir sig af góðri reynslu og ógleymanlegum upplifunum.
Kristján Baldursson
Leave a comment