Hugleiðslunámskeið

Dagsnámskeið í undirstöðu atriðum hugleiðslu og núvitundar

Á námskeiðinu lærir þú undirstöðuatriði í hugleiðslu og núvitund. Hugleiðsla getur dregið úr streitu og haft jákvæð áhrif á almenna líðan, í gegnum hugleiðslu leitumst við við að dýpka tenginguna við okkur sjálf.

Þetta hugleiðslunámskeið er fyrir alla sem vilja tileinka sér einfaldar og áhrifaríkar aðferðir sem efla innri ró og einbeitingu.

Á námskeiðinu er farið yfir:
-Grunnatriði hugleiðslu og núvitundar.
-Rannsóknir á áhrifum hugleiðslu
-Hagnýtar æfingar sem auðvelt er að nýta í daglegu lífi.

Fyrir hverja:
Námskeiðið er opið bæði byrjendum og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína á hugleiðslu. Hvort sem þú ert að leita að ró í dagsins önn eða leiðum til að efla persónulegan þroska, þá getur þetta námskeið stutt við þína vegferð.

Lengd og fyrirkomulag:
Námskeiðið samanstendur af leiddum hugleiðslum, fræðslu og umræðum og endar námskeiðið á 30 mín yoga nidra djúpslökun.
Kennari námskeiðsins er Þuríður Helga Kristjánsdóttir en hún hefur stundað hugleiðslu um árabil og er einnig með formlega menntun í hugleiðslu.

Skráning: veglyndi@veglyndi.is

Verð:
16.500