á miðvikudagskvöldum kl. 20-21.00

Nílla L. Einarsdóttir er með menntun í Hatha jóga frá Jógasetrinu, Yin, Restorative og Stólajóga frá Karma jógastúdíó, Nidra og jógaþerapíu frá Amrit Yoga Institute hjá Kamini Desai, ásamt því að læra hvernig er hægt að styðjast við áfallamiðaðar nálganir í gegnum jóga.
Sjálf hefur hún iðkað jóga til fjölda ára og upplifað á eigin skinni, á hennar vegferð hversu magnað jóga getur verið til þess að takast á við tilveruna. Nílla leggur áherslu á hæglæti, mýkt og mildi í sinni kennslu, til þess að vinna djúpt með taugakerfið, tengjast andardrættinum og slaka á, inn í það sem er. Hún er afskaplega áhugasöm um hvernig hægt er að nota jóga sem verkfæri og aðferð til þess að vinna bug á streitu, þreytu, kulnun, örmögnun, áföllum og kvíða, í þeim tilgangi að efla vellíðan.
Tímarnir eru á miðvikudögum frá kl. 20.00-21.00 í Plómunni.
Skráning er nauðsynleg og hægt að skrá sig hér.
Gott er að koma í víðum og hlýjum fötum sem þrengja ekki að og það er kjörið að koma með hlýja og mjúka sokka þar sem líkamshitinn lækkar gjarnan í slökuninni.
Vatn og te verður í boði og stemmningin notaleg og ljúf.