Um okkur

Heimildarmynd um innblástur Plómunnar

Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir

Umsjónarmaður Plómunnar

Þórhildur Fjóla er fædd árið 1979 og er umsjónarmaður Plómunnar, hún var svo heppin að fara á Happy Farm retreat í Plum Village í maí 2024. Þórhildur hefur tekið þátt í hinum ýmsu námskeiðum á netinu og í raunheimum um núvitund, t.d. á vegum Núvitundarsetursins og náttúrutengingu á vegum Plum Village (Zen and the art of saving the planet) og verið töluvert í yoga hjá hinum ýmsu kennurum (Yogavin, Jógasetrið, Yoga Shala og fleiri staðir).

Þórhildur er með masterspróf í orku- og umhverfisverkfræði frá Tækniháskólanum í Þrándheimi og með doktorspróf í sjálfbærum bygginum (zero emission buildings) frá sama skóla. Þórhildur starfar nú í ólíkum verkefnum, en stundar m.a. rannsóknir við Háskólann í Reykjavík.

Þórhildur hefur búið lengi í Noregi og hún hefur unnið mikið í umhverfismálum síðustu ár. Þórhildur sat í stjórn Náttúruverndarsamtaka Noregs 2006-2008, var orkuráðgjafi samtakanna 2006-2011og í stjórn Landverndar frá 2018-2022. Hún var framkvæmdastjóri hjá Grænni byggð (Green Building Council Iceland) á árunum 2016-2021.

Þórhildur hefur skrifað ritrýndargreinar, skýrslur og almennar greinar um orku, umhverfis- og loftslagsmál og komið að fjölda viðburða um umhverfismál.

Nýleg grein eftir Þórhildi á Vísir.is og hér má finna vísindagreinar.

Hafðu samband á torhildurfk@gmail.com

Kristján Baldursson

Eigendur Kristján Baldursson


Kristján Baldursson er fæddur árið 1945 og hefur nánast alla æfi haft mjög gaman af guðfræði, guðspeki, yoga, austrænni heimspeki og andlegum fræðum almennt. Hann hefur lesið fjöldann allann af bókum um málefnið og tekið þátt í fjölda viðburða. Tveir föðurbræður hans voru prestar í Eyjafirði, það voru þeir séra Bjartmar Kristjánsson og séra Benjamín Kristjánsson.

Sú bók sem hefur veitt Kristjáni mestan innblástur er bókin: “Hvað er bak við myrkur lokaðra augna” eða sjálfsævisaga Paramahansa Yogananda. Einnig er Kristján afar hrifin af bók Thich Nhat Hanh, “The art of living”.

Kristján er byggingaræknifræðingur frá tækniskólanum í Bergen í Noregi og starfaði í mörg ár sem slíkur, bæði á Akureyri, í Reykjavík og í Noregi.

Kristjáni eru umhverfismálin afar hugleikinn og bróðir hans heitinn, dr. Snorri Baldursson líffræðingur, var mikil fyrirmynd varðandi náttúruvernd.

Kristján hefur tekið þátt í mörgum fundum á vegum Landverndar og er meðlimur í Aldin, umhverfissamtökum eldri borgara. Kristján hefur einnig skrifað töluvert af greinum um náttúruvernd og andleg málefni.

Þórey Eyþórsdóttir

Eigendur Þórey Eyþórsdóttir


Þórey Eyþórsdóttir er sálfræðingur, talmeinafræðingur, textíl kennari, frumkvöðull og listakona.

Þórey hefur komið víða við og stofnað fjölda fyrirtækja og verkefna. Hún rak gistiheimilið Bakka á Akureyri, Gallerí AllraHanda í listagilinu á Akureyri og kaffihús á Hjalteyri við Eyjafjörð. Hún hefur undanfarin ár rekið Gallerí Vest á Hagamel 67, sem var vinnustofan hennar og sýningarsalur. Þórey hefur haldið fjölda listsýninga með þjóð-þekktu listafólki og einnig haldið fjölmargar einkasýningar.

Þórey bjó lengi í Noregi og dvaldi í Bandaríkjunum um stutta hríð. Hún starfaði lengst af sem uppeldis-og sálfræðiráðgjafi, talmeinafræðingur, listakona og sálfræðingur.

Þórey er fædd árið 1943. Þórey ólst upp á Vesturgötu í Reykjavík og faðir hennar Eyþór Magnús rak Maggabúð á Kaplaskjólsvegi.

Þuríður Helga Kristjánsdóttir

Kennari

Þuríður Helga er fædd árið 1977. Þuríður Helga hefur lokið kennaramenntun í jóga frá Nepal, Yoga Academy og í núvitund frá Mindfulness Network við Bangor University. Þuríður hefur sérhæft sig í samspili hugleiðslu annarsvegar og samfélagslegra áskorana hinsvegar. Hún hefur lagt stund á yoga og hugleiðslu frá unga aldri og hefur mikinn áhuga á austrænni heimsspeki.

Þuríður er með MA í mannauðsstjórnun, diplomu í Umhverfis og auðlindafræði, kennslufræði og BA í myndlist.

Sólveig Hlín Kristjánsdóttir

Kennari

Sólveig Hlín er fædd árið 1977. Sólveig er sálfræðingur og starfar við Núvitundarsetrið og sem forvarnarfulltrúi hjá Seltjarnarnesbæ. Sólveig Hlín lauk B.A í sálfræði frá Háskóla Íslands og cand.psych. gráðu í sálfræði frá Háskólanum í Kaupmannahöfn árið 2005. Sólveig hlaut sérfræðiviðurkenningu í klínískri barnasálfræði árið 2015.

Sólveig hefur mikla reynslu sem starfandi sálfræðingur, og hefur unnið meðal annars hjá Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins, Greiningar – og ráðgjafarstöð ríkisins og Barna- og unglingageðdeild Landsspítalans (BUGL).

Sólveig er menntaður núvitundar- og samkenndarkennari frá Bangor háskóla og hefur leitt fjölmarga viðburði og námskeið um núvitund.

Sólveig hefur líka verið virk í jógasamfélaginu, og meðal annars staðið fyrir jógahátíðum á Snæfellsnesi til að fagna sumarsólstöðum.

Vanitha M Chandrasegaram

Kennari / Teacher / facilitator

Vanitha Chandrasegaram er sálfræðimenntuð og reyndur yoga kennari og útskrifaðist sem yoga kennari frá Siddhi Yoga miðstöðinni í Rishikesh á Indlandi 2016. Hún hefur stundað yoga undanfarin 17 ár. Vanitha starfar einnig með leiklistarmeðferð og hefur víðtæka og alþjóðlega reynslu, menntun og sérfræðiþekkingu á því sviði.

Vanitha starfar hjá Therapy Co-operative í Reykjavík. https://www.therapycooperative.com. Vanitha hefur einnig verið með námskeið hjá White Lotus í Reykjavík.

Sjá hér að neðan nánari texta á ensku um Vanithu.

Vanitha Chandrasegaram has 19 years of work experience as a psychotherapist. She received her Masters of Science in Psychology, from Pittsburg State University, USA and a second master’s degree in Dramatherapy from the University of Hertfordshire, UK. Vanitha is a certified yoga instructor, receiving her yoga teacher’s training from Siddhi Yoga Rishikesh, India. Her international experience includes working for the National Health Service (NHS) in the United Kingdom, various non-governmental organizations (NGO), and Universities throughout Malaysia. She has led a home for over 70 underprivileged children from ages 4 to 16 as well as worked with women and children who have been abused. 

Contact Vanitha directly: Vanitha (at) therapycooperative.com