Vilt þú vera með viðburð í Plómunni?



Hægt er að leigja Plómuna fyrir viðburði sem sem eru í takt við stefnu Plómunnar en það eru viðburðir sem tengist til dæmis hugrækt, hvíld, núvitund, tónheilun, hugleiðslu, léttri hreyfingu, dansi, samtali, fræðslu og tengslamyndun – allt sem fylgir takti náttúrunnar.
Starfsemi Plómunnar er hugsjónastarf og hægt er að óska eftir tilboðum í leiguna eða óska eftir samstarfi um viðburði með því að hafa samband við eigendur.