Viðburðir / Events

Chill-out holistic yoga

Thursdays from 17:30-18:30

Skráning – plomanhagamel (at)gmail.com

Climate Café viðburður með náttúrumiðaðri hugleiðslu og hljóðslökun með Marinu – Fimmtudaginn 15. maí kl 20:00

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á sérstakan Climate Café viðburð með náttúrumiðaðri hugleiðslu og hljóðslökun með Marinu, í kjölfarið bjóðum við upp á jurtate úr íslenskri náttúru og notalega stund í samveruhring með öðrum þátttakendum.

Marina og Marissa stofnuðu Climate Café Iceland fyrir þremur árum meðan þær stunduðu nám í meistaranámi í umhverfisfræðum við Háskóla Íslands. Síðan þá hafa þær staðið fyrir fjölmörgum viðburðum með styrk frá Borgarbókasafninu.

🌿 Hvað er Climate Café?
Climate Café er samfélagsverkefni sem styður við persónulega seiglu og vellíðan, hvetur til umhverfisvitundar og eflir samkennd í samfélaginu. Markmiðið er að skapa rými þar sem fólk á öllum aldri og með ólíkan bakgrunn getur komið saman, miðlað reynslu sinni og velt fyrir sér tilfinningum og viðhorfum tengdum umhverfisáskorunum.

 Fylgstu með: facebook.com/ClimateCafeIceland

Climate Cafe and relaxations